Fara í innihald

Bernie Sanders

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bernie Sanders
Öldungadeildarþingmaður fyrir Vermont
Núverandi
Tók við embætti
3. janúar 2007
ForveriJim Jeffords
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir Vermont
Í embætti
3. janúar 1991 – 3. janúar 2007
ForveriPeter Plympton Smith
EftirmaðurPeter Welch
Persónulegar upplýsingar
Fæddur8. september 1941 (1941-09-08) (85 ára)
New York City, Bandaríkjunum
StjórnmálaflokkurÓflokksbundinn
Demókrataflokkurinn (2015–2016; 2019–2020)
MakiDeborah Shiling (g. 1964; s. 1966)
Jane O'Meara (g. 1988)
HáskóliChicago-háskóli
Undirskrift

Bernard „Bernie“ Sanders (fæddur 8. september 1941) er bandarískur stjórnmálamaður sem að er annar tveggja fulltrúa Vermont í öldungadeild Bandaríkjaþings.[1] Hann er óháður stjórnmálaflokkum en hefur jafnan kosið með Demókrataflokknum og situr í þingflokki þeirra. Sanders er þekktur fyrir skoðanir sínar í garð félagshyggju og sósíalískar hugmyndir.

Sanders gaf kost á sér í forvali Demókrata fyrir forsetakosningarnar 2016 en laut í lægra haldi fyrir Hillary Clinton. Hann hlaut 43.1% á meðan Clinton hlaut 55.2% atkvæða. Sanders gaf kost á sér á nýjan leik í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2020. Sanders vann sigur í fyrstu þremur ríkjunum þar sem forvalið var haldið en tapaði síðan þremur ríkjum gegn Joe Biden um miðjan mars. Sanders kom kosningabaráttu sinni ekki aftur á réttan kjöl og tilkynnti þann 8. apríl 2020 að hann hygðist hætta við framboð sitt.[2] Hann lenti aftur í öðru sæti með 26.2% á meðan Biden hlaut 51.7%.

Sanders var fulltrúardeildarþingmaður fyrir Vermont frá 1991 til 2007 sem óháður þingmaður. Í öldungadardeildarkosningunum í Vermont árið 2006 bauð hann sig fram sem óháður og vann með 65.4% atkvæða. Hann bauð sig aftur í fram í kosningunum árið 2012 og hlaut 71% atkvæða.[3] Hann bauð sig aftur fram í þriðja kjörtímabil sitt sem öldungardeildarþingmaður árið 2018 og hlaut 67.4% atkvæða. Í maí 2024 tilkynnti hann að hann myndi bjóða sig fram á ný í öldungardeildarkosningunum í Vermont sem að fóru fram í nóvember 2024.[4] Þar vann hann sitt fjórða kjörtímabil með 63.3% atkvæða.

  1. ↑ John Nichols (30 október 2012). „How Does Bernie Sanders Do It?“. The Nation.com. Sótt 1 júlí 2015.
  2. ↑ Samúel Karl Ólason (8. apríl 2020). „Bernie Sanders hættir framboði sínu“. Vísir. Sótt 8. apríl 2020.
  3. ↑ „2012 United States Senate election in Vermont“, Wikipedia (enska), 14 ágúst 2024, sótt 14 ágúst 2024
  4. ↑ Ólason, Samúel Karl (5 júní 2024). „Átta­tíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í við­bót - Vísir“. visir.is. Sótt 14 ágúst 2024.